Birta er þvottahús og þrifþjónusta fyrir heimili, gististaði og fyrirtæki af öllum gerðum, þar á meðal gistiheimili, sumarhús, íbúðir og stofnanir. Ásamt því að sinna þrifum sækjum við og sendum þvott til þjónustuþega okkar.
Við veitum gæðaþjónustu af hæsta staðli og er starfsfólk okkar vel þjálfað og með áralanga reynslu af þrifum og þjónustu við fyrirtæki, einstaklinga og stofnanir.
Fagmennska
Hjá Birta þvottur og þrif leggjum við metnað okkar í að veita þjónustu sem byggir á trausti, gæðum og fagmennsku. Við vitum að hreint og vel umgengið umhverfi skiptir máli – bæði fyrir starfsfólk og gesti.
gæði
Við leggjum áherslu á fagmennsku, áreiðanleika og persónulega þjónustu. Markmið okkar er að veita hverjum viðskiptavini framúrskarandi upplifun þar sem þörfum hans er mætt af virðingu og umhyggju. Með stöðugri endurskoðun og umbótum tryggjum við að þjónustan okkar sé alltaf í hæsta gæðaflokki.
sveigjanleiki
Við aðlögum þjónustuna að óskum og þörfum hvers og eins þjónustuþega. Hvort sem um er að ræða tíma, aðferðir eða lausnir, leggjum við áherslu á sveigjanleika.